Viðburðir

  • Bakkabræður
  • 6. júní 2020, 12:00, Félagsheimilið Bolungarvík

Bakkabræður í Bolungarvík

Fjölskyldusöngleikurinn Bakkabræður sýndur 6. júní 2020 kl. 12:00 við Félagsheimili Bolungarvíkur.

Í sumar setur Leikhópurinn Lotta upp fjölskyldusöngleik byggðan á þjóðsögunum um Bakkabræður. Í meðförum Lottu má segja að Bakkabræður fái tækifæri til að segja okkur sögu sína á sínum forsendum og leiðrétta þær rangfærslur sem hafa ratað í þjóðsögurnar. 

Bakkabræður er sýning sem er hugsuð fyrir alla aldurshópa og eiga þar fullorðnir jafnt sem börn að geta skemmt sér saman. Þar sem sýningarnar eru utandyra er um að gera að klæða sig eftir veðri, pakka smá nesti og hella vatni í brúsa og halda svo á vit ævintýranna í Ævintýraskóginum.

Vegna takmarkana verða sýningargestir að fylgja fyrirmælum sem gefnar verða í upphafi sýningarinnar en sýningin er í boði Bolungarvíkurkaupstaðar.

Almennt eru gestir beðnir um að virða 2 metra regluna og fylgja tilmælum Björgunarsveitarinnar Ernis sem annast gæslu. 

Leiksýningin er fyrir 16 ára og yngri, mælst er til þess að systkin aðstoði hvert annað og aðeins einn fullorðin komi úr fjölskyldu ef þörf er á. Fremst við sviðið á leiksýningu verður svæði fyrir 16 ára og yngri en lengra frá sviðinu verða svæði með 2 metra reglu.

Bakkabræður eru 13. frumsamdi söngleikurinn sem Leikhópurinn Lotta setur upp, að venju er fjörið í fyrirrúmi, mikið af gríni, glensi og skemmtilegum lögum þó undirtónninn sé alvarlegur og boðskapurinn fallegur.

Leikhópurinn Lotta er landsmönnum að góðu kunnur, en hópurinn hefur frá árinu 2007 ferðast með sýningar sínar um landið þvert og endilangt. Lotta hefur sérhæft sig í utandyra sýningum á sumrin og ferðast nú 14. sumarið í röð með glænýjan fjölskyldusöngleik.