Dagur íslenskrar náttúru
Þann 16. september 2010, á 70 ára afmæli Ómars Ragnarssonar, var ákveðið að sá dagur yrði upp frá því tileinkaður íslenskri náttúru.
Felst í þessu viðurkenning á framlagi Ómars til náttúruverndar og almenningsfræðslu um mikilvægi íslenskrar náttúru sem og allra þeirra sem lagt hafa sitt af mörkum til að fræða um íslenska náttúru.
Markmiðið með degi íslenskrar náttúru er að beina sjónum landsmanna að hinni einstöku náttúru landsins, gögnum hennar og gæðum.