Gísli á Uppsölum
Leikverkið Gísli á Uppsölum verður sýnt miðvikudaginn 30. nóvember kl. 20 í Líkkistusmiðju Kristins í Hæstakaupstað á Ísafirði.
Hin áhrifamikla sýning Gísli á Uppsölum í uppfærslu Kómedíuleikhúsins hefur verið sýnd víða um land og fengið góðar undirtektir.
Gísli á Uppsölum er einstakt leikverk um einstakan mann. Einn stærsti viðburður íslenskrar sjónvarpssögu er Stiklu þáttur Ómars Ragnarssonar um einbúann Gísla Oktavíus Gíslason. Enn er Gísli landanum kær og hugleikinn.
Miðasala fer fram á netinu. Vinsamlegast greiðið í heimabanka
Reikningur: 0156 26 64
Kennitala: 640401 2650
Miðaverð 3.500.- kr
Setjið skýringu við greiðsluna Ísafjörður
Einnig er hægt að panta miða í síma: 891 7025 og eða senda tölvupóst á komedia@komedia.is.
Höfundar leiksins eru Bílddælingarnir Elfar Logi Hannesson og Þröstur Leó Gunnarsson. Elfar leikur og Þröstur leikstýrir. Höfundur tónlistar er Svavar Knútur.