Viðburðir

  • Æskujól 2019
  • 7. desember 2019, 20:00, Félagsheimilið Bolungarvík

Jólahlaðborð og dansleikur

Jólahlaðborð verður laugardaginn 7. desember 2019 kl. 20:00 í Félagsheimili Bolungarvíkur. 

Arnar Bjarni Stefánsson og sérsveitin sjá um að reiða fram dýrindis jólahlaðborð.

Gísli Einarsson úr Landanum er veislustjóri og Halli og Þórunn leika fyrir dansi eftir borðhald. Dansleikurinn er opinn öllum og hefst kl. 23:00, miðaverð er 2.000 kr.  

Æskujól taka lagið undir borðum og kynna hátíðartónleika sem haldnir verða í Ísafjarðarkirkju þann 19. desember.

Húsið opnar kl 19:00 og borðhald hefst kl 20:00. Aðgangseyrir fyrir hlaðborð, skemmtun og dansleik er 12.900 kr.

Matsedill2019