Viðburðir

  • Sætabrauðsdrengirnir
  • 30. nóvember 2019, 20:00 - 22:00, Félagsheimilið Bolungarvík

Jólatónleikar Sætabrauðsdrengjanna 2019

Jólatónleikar Sætabrauðsdrengjanna verða haldnir laugardaginn 30. nóvember 2019 kl. 20:00 í Félagsheimili Bolungarvíkur. 

Sætabrauðsdrengirnir eru!

  • Bergþór Pálsson, 
  • Gissur Páll Gissurarson, 
  • Hlöðver Sigurðsson og 
  • Viðar Gunnarsson, ásamt Ísfirðingnum 
  • Halldóri Smárasyni, útsetjara og píanóleikara.

Þeir sem hafa verið á tónleikum drengjanna hafa orðið vitni að frábærum flutningi enda hafa þessir söngvarar verið meðal okkar bestu og þekktustu listamanna um árabil.

Áheyrendur vita einnig að þótt hátíðleikinn og gæðin séu í fyrirrúmi þá er stutt í grínið og gamanið. 

Tónlistin er fengin víða að en Halldór Smárason píanóleikari hefur útsett megnið af tónlistinni sem flutt verður af einstöku listfengi.