Leikhópurinn Lotta - Hrói Höttur
Leikhópurinn Lotta verður með sýninguna Hrói Höttur fyrir utan Félagsheimil Bolungarvíkur laugardaginn 31. maí 2025 klukkan 12:00
Leikhópurinn Lotta er landsmönnum að góðu kunnur, en hópurinn hefur frá árinu 2007 ferðast með sýningar sínar um landið þvert og endilangt. Í sumar leggja þau land undir fót að vanda með frabæran söngleik að vanda, en sýning sumarsins verður Hrói Höttur.
Hrói Höttur er íslenskur söngleikur sem sýndur er utandyra, sýningin er klukkutími að lengd og stútfull af sprelli og fjöri fyrir allan aldur. Í sýningunni fá áhorfendur að kynnast Hróa Hetti og vinum hans Þöll og Þyrnirós sem berjast fyrir réttlæti í ævintýraskóginum. Sögurnar um Hróa og Þyrnirós skemmtilega saman, Jóhann prins, fógetinn og Tóki munkur láta að sjálfsögðu sjá sig og fáum við að kynnast fleiri skemmtilegum persónum úr ævintýraskóginum eins og Tomma litla, mömmu Hróa og álfkonum.
Hrói Höttur er sýning sem er hugsuð fyrir alla aldurshópa og eiga þar fullorðnir jafnt sem börn að geta skemmt sér saman. Þar sem sýningarnar eru utandyra er um að gera að klæða sig eftir veðri, pakka smá nesti og hella vatni í brúsa og halda svo á vit ævintýranna í Ævintýraskóginum.