Viðburðir

  • Isibordi
  • 5. febrúar 2020, Bolungarvík

Lífshlaupið 2020

Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra landsmanna.

Markmið þess er að hvetja landsmenn til þess að fara eftir ráðleggingum embættis landlæknis um hreyfingu hvort sem er í frítíma, vinnu, skóla eða við val á ferðamáta. 

Í ráðleggingunum segir að börn og unglingar ættu að hreyfa sig í minnst 60 mínútur daglega og fullorðnir ættu að stunda miðlungserfiða hreyfingu í minnst 30 mínútur daglega.

Lífshlaupið skiptist í fjóra keppnisflokka:

  • vinnustaðakeppni frá 5. febrúar – 25. febrúar, fyrir 16 ára og eldri (þrjár vikur)
  • framhaldsskólakeppni frá 5. febrúar – 18. febrúar, fyrir 16 ára og eldri (tvær vikur)
  • grunnskólakeppni frá 5. febrúar – 18. febrúar, fyrir 15 ára og yngri (tvær vikur)
  • einstaklingskeppni þar sem hver og einn getur skráð inn sína hreyfingu allt árið

Skráningarferlið er einfalt og þægilegt en fínar leiðbeiningar eru á vefnum.