Ljóti andarunginn
Leikhópurinn Lotta sýnir Ljóta andarungann, glænýtt íslenskt leikrit með söngvum, um sjómannadagshelgina í Bolungarvík.
Leikritið er sýnt við félagsheimilið laugardaginn 10. júní kl. 12:00 og er ókeypis fyrir áhorfendur.
Þetta er ellefta sumarið sem Leikhópurinn Lotta setur upp útisýningu en síðastliðin sumur hefur hópurinn tekist á við Litaland, Litlu gulu hænuna, Hróa hött, Gilitrutt, Stígvélaða köttinn, Mjallhvíti og dvergana sjö, Hans klaufa, Rauðhettu, Galdrakarlinn í Oz og Dýrin í Hálsaskógi.
Höfundur Ljóta andarungans er Anna Bergljót Thorarensen. Þetta er sjöunda leikritið sem hún skrifar fyrir hópinn en hún hefur verið meðlimur í Leikhópnum Lottu frá stofnun hans árið 2006.
Ný tónlist hefur einnig verið samin fyrir verkið. Textarnir eru eftir Önnu Bergljótu en lögin sömdu Helga Ragnarsdóttir og Rósa Ásgeirsdóttir.
Ljóti andarunginn er ný útgáfa Leikhópsins Lottu af klassísku ævintýri H. C. Andersen um litla ungann sem hvergi virðist eiga heima. Lotta notar hér tækifærið til að takast á við erfitt samfélagsvandamál, nefnilega einelti. TIl að bæta við skemmtanagildið og um leið styðja boðskapinn blandar Lotta saman fimm sögum en auk Ljóta andarungans kynnumst við Öskubusku, Kiðlingunum sjö, Héranum og skjaldbökunni og Prinsessunni á bauninni. Ævintýriin eru síðan öll límd saman með nýjum íslenskum lögum svo úr verður sannkölluð fjölskylduskemmtun.
Gott er að klæða sig eftir veðri þar sem sýnt er utandyra. Þá mælir Lotta með því að foreldrar taki myndavélina með þar sem áhorfendur fá að hitta persónurnar úr leikritinu eftir sýningu. Öllum þykir jú gaman að eiga mynd af sér með uppáhalds vini sínum úr Ævintýraskóginum.
Nánari upplýsingar um sýninguna má finna á www.leikhopurinnlotta.is og í síma 770-0403.