Óshvilft-ganga og stikun í boði Heilsubærinn í Bolungarvík
Fimmtudaginn 12. júní 2025, kl. 17:00
Fimmtudaginn 12. júní 2025 kl. 17:00
Heilsubærinn hefur staðið fyrir merkingu á gönguleiðum með stikum og heldur sú vinna áfram. Áætlað er að stika gönguleiðina upp í Óshvilft á fimmtudaginn 12. júní kl. 17:00. Ætlum að hittast á gamla veginum við undirgöngin rétt fyrir 17:00. Áætlaður göngutími er ca. 80 mínútur.
Fjölmennum og vinnum saman að því að merkja fallegu gönguleiðirnar okkar.
Allir velkomnir!