Skrautfjaðrir Bolungarvíkur
Menningar- og ferðamálaráð Bolungarvíkur stendur fyrir keppni um best skreyttu húsin um markaðshelgina.
Sérleg dómnefnd á vegum ráðsins mun skoða húsin og velja úr.
Vegleg verðlaun eru í boði fyrir fyrsta, annað og þriðja sæti.
Úrslitin verða kynnt á markaðsdaginn.