Viðburðir

  • Skrautfjaðrir Bolungarvíkur
  • 1. júlí 2021, 17:00, Bolungarvík

Skrautfjaðrir Bolungarvíkur

Menningar- og ferðamálaráð Bolungarvíkur stendur fyrir keppni um best skreyttu húsin um markaðshelgina.

Sérleg dómnefnd á vegum ráðsins mun skoða húsin og velja vinningshafa.

Vegleg verðlaun eru í boði fyrir fyrsta, annað og þriðja sæti.

  1. 50.000 kr. fyrsta sæti
  2. 30.000 kr. annað sæti
  3. 20.000 kr. þriðja sæti

Úrslitin verða kynnt á markaðsdaginn. Vinninga vitjað á bæjarskrifstofu.