Viðburðir

  • Söngelskur
  • 2. júlí 2021, 21:00, Félagsheimilið Bolungarvík, 0 kr.

Sungið með Söngelskum í minningu Áka Sigurðssonar

Söngelskur koma aftur til okkar og syngja saman föstudagskvöldið 2. júlí 2021 kl. 21 í Félagsheimili Bolungarvíkur.

Söngelskur eru nokkrir vinir sem elska að spila og syngja saman.

Flest eiga þau rætur að rekja vestur á firði. Söngstundin er helguð minningu Áka Sigurðssonar. 

Það er frítt inn, komdu og syngdu með - Mamma mia, here we go again!