Tendrun ljósanna 2021
Fyrsta sunnudag í aðventu þann 28. nóvember 2021 kl. 17:00 verða ljósin á jólatrénu við Félagsheimilið tendruð.
Flutt verður hugvekja, Kirkjukór Bolungarvíkur syngur og í boði verða smákökur og súkkulaði.
Dansað verður kringum jólatréð og jólasveinar koma til okkar með pokann sinn.
Menningar- og ferðamálaráð Bolungarvíkurkaupstaðar býður alla hjartanlega velkomna.