Viðburðir

  • Tendrun ljósanna
  • 27. nóvember 2022, 17:00, Félagsheimilið Bolungarvík

Tendrun ljósanna 2022

Fyrsta sunnudag í aðventu þann 27. nóvember 2022 kl. 17:00 verða ljósin á jólatrénu við Félagsheimilið tendruð.

Flutt verður hugvekja, Kirkjukór Bolungarvíkur syngur og í boði verða smákökur og súkkulaði.

Dansað verður kringum jólatréð og jólasveinar koma til okkar með pokann sinn.

Menningar- og ferðamálaráð Bolungarvíkurkaupstaðar býður alla hjartanlega velkomna.