Viðburðir

  • Varist eftirhermur!
  • 17. október 2019, 21:00, Félagsheimilið Bolungarvík, 3.990 kr.

Varist eftirhermur!

Varist eftirhermur! er sýning Sóla Hólm fimmtudaginn 17. október 2019 kl. 21:00 í Félagsheimili Bolungarvíkur.

Eftir 27 uppseldar sýningar á uppistandinu Varist eftirhermur! víða um land mætir Sóli Hólm til Bolungarvíkur og stígur á svið í félagsheimilinu.

Titill sýningarinnar er lýsandi þar sem fáir hér á landi geta brugðið sér í líki jafnmargra þjóðþekktra Íslendinga og Sóli Hólm.

Sóli Hólm sló í gegn á síðasta ári þegar hann setti sína fyrstu uppistandssýningu á svið í byrjun árs. Sýningarnar áttu upphaflega að vera fjórar en urðu á endanum 35. Þá sýningu notaði Sóli meðal annars til að gera upp baráttu sína við krabbamein sem hann sigraðist á árið 2017.

Nú einbeitir Sóli sér að því sem hann gerir best og það er að herma eftir.

Húsið opnar kl 20:00.

Miðasala á tix.is og í anddyri félagsheimilisins. 

Aðgangseyrir kr 3.990.