Viðburðir

  • Event_6207
  • 5. september 2019, 13:00, Félagsheimilið Bolungarvík

Velkomin heim

Þjóðleikhúsið býður unglingastigi grunnskóla á sýninguna Velkomin heim þann 5. september 2019 kl. 13:00 í Félagsheimili Bolungarvíkur.

Vala Rún fæddist á hrísgrjónaakri í Taílandi um miðja 20. öldina. Hún veit ekki hvenær hún á afmæli, bara að hún fæddist einhvern tímann á monsúntímabilinu. Hún kynntist aldrei föður sínum, missti móður sína sex ára og var meira og minna á eigin vegum eftir það. Árið 2019 stendur dóttir hennar á leiksviði í Þjóðleikhúsinu, fyrsta konan af asískum uppruna sem útskrifast af leikarabraut Listaháskóla Íslands.

Í leiksýningunni Velkomin heim! segir leikkonan María Thelma Smáradóttir sögu móður sinnar, fjallar um líf hennar í Taílandi og reynslu hennar þegar hún kom fyrst til Íslands fyrir 26 árum.

Völu Rún fannst hún aldrei eiga heima neins staðar í Taílandi. Á Íslandi leið henni eins og hún væri komin heim, og þó þekkti hún hér engan fyrir og talaði ekki tungumálið. Hvað er það að eiga heima einhvers staðar? Hvað er heimaland?

Í samstarfi við leikhópinn Trigger Warning. Verkefnið er styrkt af mennta- og menningarmálaráðuneyti - leiklistarráði.

Eftir Maríu Thelmu Smáradóttur í leikstjórn Andreu Vilhjálmsdóttur og Köru Hergils, leikkona María Thelma Smáradóttir.