Reglugerð um kjör íþróttamanns Bolungarvíkur

1. grein

Tilkynning á vali íþróttamanneskju ársins og afhending viðurkenninga skal fara fram með hátíðarsamkomu, sem ráðið ákveður hverju sinni. og skal vera haldið fyrir 31. janúar ár hvert. Boðsbréf skulu send út til þeirra sem tilnefndir eru.

2. grein

Íþróttafélög í Bolungarvík og nágrenni skili rökstuddum tilnefningum fyrir 31. desember ár hvert á skrifstofu Bolungarvíkurkaupstaðar merktar fræðslumála- og æskulýðsráði, eða senda rafrænt í tölvupósti til formanns ráðsins.


3. grein

Íþróttafélög í Bolungarvík og nágrenni er heimilt að tilnefna að hámarki einn einstakling til kjörs á íþróttamanneskju ársins. Íbúum Bolungarvíkurkaupstaðar gefst einnig kostur á að tilnefna íþróttafólk. Fræðslumála- og æskulýðsráði er heimilt að bæta við tilnefningum eða hafna einstökum tilnefningum ef ástæða þykir til.


4. grein

Heimilt er að tilnefna hvern þann einstakling sem hefur náð 18 ára aldri, hefur lögheimili í Bolungarvík og/eða æfir með íþróttafélagi í Bolungarvík. Einstaklingurinn þarf að hafa sýnt framúrskarandi árangur í íþrótt sinni á árinu, sýnt góða ástundun og áhuga, komið prúðmannlega fram og verið öðrum góð fyrirmynd. Íþróttamanneskja ársins hlýtur við útnefningu farandbikar til eins árs og bikar til eignar. Allt tilnefnt íþróttafólk hlýtur sérstaka viðurkenningu.


5. grein

Þegar skilað er inn tilnefningum um íþróttamanneskju ársins skal skila inn rökstuddri greinargerð um viðkomandi íþróttamanneskju. Þar skal meðal annars koma fram umsögn um íþróttamanneskjuna, afrek, persónuleika, stefnu, o.s.frv. Ráðið mun nota þessar upplýsingar til mats á hverjum einstaklingi, og útdráttur úr þessum rökstuðningi verður lesinn upp þegar viðkomandi er útnefndur.

6. grein

Hvert Félag eða deild innan félags má tilnefna:

A) efnilegastu íþróttamanneskju ársins yngri en 18 ára að hámarki einn einstaklingur.

B) til viðurkenninga fyrir árangur og framfarir að hámarki þrjá einstaklinga. Einnig er heimilt að tilnefna til viðurkenninga ef hópur hefur náð framúrskarandi árangri á árinu.

C) að hámarki einn einstakling til hvatningarverðlauna fyrir óeigingjarnt starf í þágu íþrótta og æskulýðsmála í sveitarfélaginu.

Rökstuðningur skal fylgja með öllum tilnefningum.

7. grein
Faglegt mat á tilnefningum og framkvæmd kjörsins skal vera í höndum fræðslumála- og æskulýðsráðs í Bolungarvík. Aðal- og varamenn ráðsins kjósa íþróttamennskju Bolungarvíkur samkvæmt vinnureglum ráðsins. Bæjarstjórn Bolungarvíkur útnefnir íþróttamanneskju Bolungarvíkur á grundvelli niðurstöðu fræðslumála- og æskulýðsráðs.

8. grein
Reglugerð var samþykkt á fundi fræðslumála- og æskulýðsráðs þann 7. nóvember 2023. 

Ný reglugerð var samþykkt á 809. fundi bæjarstjórnar 7. nóvember 2024.