Viðburðir

  • Kyiv Soloists
  • 30. júní 2022, 19:30, Íþróttahúsið Árbær

Kyiv Soloists ásamt gestaleikurum frá Spáni og Íslandi

Tónleikar úkraínsku kammersveitarinnar Kyiv Soloists ásamt gestaleikurum frá Spáni og Íslandi fara fram fimmtudaginn 30. júní 2022 kl. 19:30 í Íþróttahúsinu Árbæ í Bolungarvík.

Erki PehkEfnisskrá tónleikanna
C.M. von Weber - Klarinettukonsert nr. 1, einleikari Selvadore Rähni
C.M. von Weber - Píanókonsert nr. 1, einleikari Oliver Rähni
M. Berezovsky - sinfónía í C-dúr
A. Shymko - „Draumar af fornum skógi“ fyrir strengjahljómsveit (2004-2005)
Selvadore RähniP. Kacha - úkraínskt þjóðlag, úts. Viktor Rekalo
V. Silvestrov - „Silent music“

Erki Pehk - hljómsveitarstjóri.

Úkraínska kammersveitin Kyiv Soloists (National Chamber Ensemble "Kyiv Soloists") samanstendur af úkraínsku tónlistarfólki sem hefur sigrað úkraínskar og alþjóðlegar tónlistarkeppnir.

Oliver RähniÍ ársbyrjun 2022 fór hljómsveitin í tónleikaferð um Evrópu og á Ítalíu fékk hún fréttir af innrás rússneskra hermanna í Úkraínu. Allt breyttist og það var ekki lengur mögulegt að snúa aftur heim til Úkraínu. Í samvinnu við leiðandi tónleikasamtök í Evrópu var tónleikaferð Kyiv Soloists framlengd um óákveðinn tíma.

„Við spilum fyrir friði í Úkraníu“, segja þau.

Kyiv Soloists koma til landsins á vegum Tónlistarhátíðarinnar Miðnætursólar sem Tónlistarskóli Bolungarvíkur stendur fyrir ásamt Bolungarvíkurkaupstað.

Tónleikarnir eru styrktartónleikar fyrir Úkraínu. Frjáls framlög má greiða á reikning 0174-05-401129, kennitölu 650269-2339.

Styrktaraðilar: Tónlistarskóli Bolungarvíkur, Bolungarvíkurkaupstaður, Uppbyggingarsjóður Vestfjarða, Harpa, Icelandair Hotels, Hótel Ísafjörður, Elísabet Guðmundsdóttir og Björgvin Bjarnason og Orkubú Vestfjarða.