• Hólskirkja í Bolungarvík. Mynd: Haukur Sigurðsson

Hólskirkja í Bolungarvík

Sælir eru þeir sem heyra Guðs orð og varðveita það.

Sr. Fjölnir Ásbjörnsson
8662581, srfjolnir@simnet.is

Einar Jónatansson, formaður sóknarnefndar
8928525, einar [hjá] gna.is

Hóll er bær og kirkjustaður í Bolungarvík. Þar voru katólsku kirkjurnar helgaðar Maríu guðsmóður. Hólskirkja var útkirkja frá Eyri í Skutulsfirði en var gerð að sérstöku prestakalli árið 1925.

Kirkjan, sem nú stendur þar, var byggð 1908 og vígð 6. desember sama ár. Rögnvaldur Ólafsson teiknaði hana en Guðni M. Bjarnason á Ísafirði var yfirsmiður. Kirkjan er út timbri og járnvarin. Timbrið kom að mestu tilhöggvið frá Noregi.

Kirkjan var í eigu Hólsbænda til 1925, þegar söfnuðurinn keypti hana á 4.400 kr. Gréta og Jón Björnsson skreyttu hana og máluðu að innan 1978. Skírnarsárinn er verk Ríkharðs Jónssonar, myndhöggvara. Prédikunarstóllinn er beint upp af altarinu. Tvær stórar klukkur frá 1620 og 1775 eru í kirkjunni. Þær voru hafðar svo stórar til að draga úr reimleikum á Skálavíkurheiði.

Ræður og greinar