Fréttir
  • 17.-juni-40-x-27-cm-1-

17. júní 2024

Íslenska lýðveldið var stofnað á Þingvöllum þann 17. júní 1944 og fagnar því 80 ára afmæli á árinu. Í tilefni þess hefur forsætisráðuneytið gefið út bókina "Fjallkonan" út í samvinnu við Forlagið, sem er gjöf til landsmanna. Fjallkonan er þjóðartákn og í bókinni er kafað ofan í sögu fjallkonunnar, ávörpin sem flutt hafa verið af íslenskri fjallkonu allt frá árinu 1947 ásamt úrvali þjóðhátíðarljóða. Í bókinni eru þýðingar m.a. á ensku og pólsku. Bókina má nálgast í Musteri vatns og vellíðunar. 

Dagskrá 17. júní í Bolungarvík

  • 11:00 Fleytukeppni í Hólsá 
    • Allir krakkar eru hvattir til að smíða sér fley í keppnina og taka þátt.
      Reglurnar eru þær að fleytan skal vera heimasmíðuð, hver keppandi má aðeins hafa eina fleytu og hún skal að lágmarki vera 20 cm löng.

    • Verðlaun fyrir 1., 2. og 3. sæti í formi gjafabréfa

  • 12:30 Skrúðganga frá Ráðhúsi
  • 12:40 Hátíðardagskrá við Félagsheimilið
    •  Fjallkonan kemur til okkar, við syngjum þjóðsönginn og nýstúdent flytur hátíðarrræðu. Á borðstólum verða bollakökur í boði forsætisráðuneytisins á meðan birgðir endast.