Aðeins tekið við rafrænum reikningum
Reikningar skulu vera á svokölluðu XML-formi og miðlað í gegnum skeytamiðlara.
Pappírsreikningar og reikningar á PDF-formi sem eru útgefnir eftir 31. desember 2021 munu verða endursendir og kallað eftir rafrænum reikningum.
Mælt er með að viðskiptavinir og birgjar gefi út reikninga í eigin kerfi og miðli í gegnum skeytamiðlara. Þjónustuaðilar fjárhagskerfa og skeytamiðlarar veita ráðgjöf um útgáfu og miðlun rafrænna reikninga.
Aðilum sem eru án bókhaldskerfis er bent á að á markaði er allskyns bókhaldsþjónusta í boði og ýmis bókhaldskerfi á vefnum sem rekstraraðilar geta nýtt sér til að senda rafræna reikninga.
Fyrir aðila sem senda fáa reikninga eru í boði veflausnir þar sem hægt er að handskrá reikninga og senda, yfirleitt án kostnaðar fyrir lítið magn reikninga.
Dæmi um þjónustusíður eru:
- InExchange: https://inexchange.is/bolungarvik-mottokuvefur
- Sendill: http://www.sendill.is/um-sendil/pakkar-og-verd
- Advania: https://www.skuffan.is