Fréttir
  • Ráðhús Bolungarvíkur

Ákall til íbúa Reykhólahrepps

Samgöngur okkar Vestfirðinga hafa lengi valdið íbúum og fyrirtækjum erfiðleikum og mikil vinna verið lögð í endurbætur á Vestfjarðavegi. Hingað til hefur algjör sátt og einhugur ríkt meðal allra sveitarstjórna á Vestfjörðum um að leggja áherslu á láglendisveg út úr fjórðungnum samkvæmt leið Þ-H til að stytta ferðatíma og auðvelda samgöngur árið um kring. Núna þegar sveitarstjórn Reykhólahrepps virðist ætla að fara aðrar leiðir en áður hefur verið unnið að, fyllumst við eins og aðrir Vestfirðingar ótta um að þessi framkvæmd sigli á ný í strand og að enn og aftur verði málinu frestað.

Framundan er stór ákvörðun sem sveitarstjórn Reykhólahrepps þarf að taka og er þess vænst að við þá ákvörðun verði jafnframt tekið tillit til hagsmuna íbúa og fyrirtækja utan Reykhólahrepps. Það skiptir alla Vestfirðinga gríðarlegu máli að hægt sé að hefja úrbætur á Vestfjarðavegi sem allra fyrst, því 60 ára gamlir þjóðvegir eru á engan hátt boðlegir í nútíma samfélagi.

Við óskum jafnframt eftir stuðningi stjórnvalda til að koma þessum brýnu samgöngubótum samkvæmt Þ-H leið á Vestfjarðavegi í gegn sem allra fyrst.