Fréttir
  • Bolungarvík

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2017-2018.

Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir eftirtalin byggðarlög skv. ákvæðum reglugerðar nr. 604/2017 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2017-2018.

  • Bolungarvík 
  • Akureyrarkaupstað (Grímsey og Hrísey)
  • Borgarfjörð eystri
  • Djúpavog

Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í neðanskráðum byggðalögum sbr. auglýsingu  nr. 17/2018 í Stjórnartíðindum

  • Vesturbyggð (Brjánslækur Patreksfjörður og Bíldudalur)
  • Ísafjarðarbær (Þingeyri, Flateyri, Suðureyri, Hnífsdalur og Ísafjörður)
  • Fjallabyggð (Siglufjörður og Ólafsfjörður) 

Umsóknum skal skilað til Fiskistofu á eyðublaði

Umsóknum þarf að fylgja samningur við vinnslu á eyðublaði.  

Vakin skal athygli á því að umsóknin telst ekki gild nema samningur um vinnslu fylgi.

Umsóknarfrestur er til og með 2. febrúar 2018.