Fréttir
  • IMG_6357

Baráttudagur gegn einelti

Markmið dagsins er m.a. að efna til umræðu og fræðslu til að vinna gegn einelti, hvetja til jákvæðra samskipta og efla vináttu.

Í dag 8. nóvember er haldinn baráttudagur gegn einelti hér á landi. Íbúar eru hvattir til að standa saman gegn einelti í samfélaginu, ekki síst í skólum og á vinnustöðum. Allir eru hvattir til að leggja sitt að mörkum til að einelti fái ekki þrifist í samfélaginu og beina sjónum að jákvæðum samskiptum, skólabrag og starfsanda.

Sýnum hvort öðru gagnkvæma virðingu í samskiptum, verum góð fyrirmynd og eyðum einelti.

Vinnueftirlitið hefur gefið út veggspjald og þar er að finna 10 ráð til að vinna gegn einelti á vinnustað.