Fréttir
  • 20171211-DJI_0236

Bolungarvíkurkaupstaður auglýsir eftir fjármála- og skrifstofustjóra

Bolungarvíkurkaupstaður auglýsir eftir fjármála- og skrifstofustjóra. Starfið er mjög margþætt og krefst því góðrar færni á ýmsum sviðum. Fjármála- og skrifstofustjóri er yfirmaður á bæjarskrifstofu, stýrir fjármálum sveitarfélagsins og er staðgengill bæjarstjóra. Um er að ræða 100% framtíðarstarf.

Starfssvið

• Fagleg forysta og verkstjórn á daglegum verkefnum bæjarskrifstofu.

• Ábyrgð á daglegri umsýslu fjármála og bókhalds.

• Umsjón með fjárhagsáætlanagerð, frávikagreiningum og kostnaðareftirliti.

• Ábyrgð á gerð rekstrar- og fjárhagsáætlana.

• Fjárhagslegar úttektir og greiningar.

• Eftirfylgni með framgangi rekstrar- og fjárhagsáætlana.

• Þátttaka í stefnumótun og nýsköpun á sviði fjármála og fjárreiða.

• Aðstoð við samningagerð og önnur fjármálatengd verkefni.

• Samskipti við forstöðumenn og íbúa vegna erinda er snúa að fjármálum og annarri þjónustu bæjarfélagins.

Menntunar- og hæfniskröfur

• Háskólamenntun sem nýtist í starfi er skilyrði.

• Framhaldsmenntun er æskileg.

• Haldgóð reynsla af sambærilegu starfi.

• Mjög góð þekking á reikningshaldi, uppgjörum og áætlanagerð.

• Þekking á málefnum sveitarfélaga er kostur.

• Góð tölvukunnátta skilyrði.

• Kunnátta í Navision bókhaldskerfum er kostur.

• Góð kunnátta í íslensku og ensku og geta til að tjá sig í ræðu og riti.

• Leiðtogahæfileikar og drifkraftur í starfi.

• Mikil hæfni í mannlegum samskiptum og góð félagsleg færni.

• Samviskusemi og nákvæmni í starfi.

Bolungarvík er rúmlega1000 manna bæjarfélag. Þar er góður grunnskóli, leikskóli og tónlistarskóli, íþróttahús og sundlaug. Frábær aðstaða fyrir menningarviðburði, nýtt hjúkrunarheimili, ný félagsmiðstöð fyrir unglinga, íbúðir fyrir aldraða og stutt í alla þjónustu. Á næstu árum standa svo fyrir dyrum ýmsar framkvæmdir í bænum. Talsverður vöxtur hefur verið í atvinnulífinu á undanförnum árum. Miklir möguleikar til atvinnuuppbyggingar í Bolungarvík eru í sjónmáli og stöðugt skapast ný tækifæri til sóknar.

Umsóknum skal skila rafrænt á jonpall@bolungarvik.is ásamt ferilsskrá og kynningarbréfi. Umsóknarfrestur er frá og með 15.janúar nk.