Fréttir
  • Briet.is

Bríet og Bolungarvík óska eftir byggingaraðilum

Leigufélagið Bríet stefnir á uppbyggingu á hagkvæmum leiguíbúðum í Bolungarvík og auglýsir því eftir byggingaraðilum til samstarfs. 

Byggingaraðili skal vera aðalverktaki og annast framkvæmd verkefnis í samráði við sveitarfélagið og Leigufélagið Bríeti.

Gögn fyrir samstarfsaðila er hægt að nálgast með að senda tölvupóst á soffia@briet.is og skal gögnum skilað fyrir föstudaginn 9. apríl 2021.

Við val á byggingaraðilum til samstarfs verður tekið tillit til reynslu aðila ásamt hagkvæmni og gæðum lausna.

Nánari upplýsingar veita Soffía Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Bríetar, (soffia@briet.is) og Elmar Erlendsson, byggingafræðingur hjá HMS, (elmar.erlendsson@hms.is).