Fréttir
  • Bolungarvíkurhöfn

Brjóturinn, endurbygging stálþils

Helstu verkþættir eru:

  • Prufurekstur, sprengd eða rippuð rás fyrir þil ef þörf reynist á.
  • Rekstur 78 stálþilsplatna, steypa akkerisplötur, uppsetning staga og festinga og fylling innan við þil.
  • Taka upp fríholt, brjóta og fjarlægja kant með pollum og festihringjum alls um 97 m.
  • Brjóta og fjarlægja steypta þekju. Aftengja og taka upp raf-, og vatnslagnir.
  • Leggja vatnslagnir í bryggjuna og ídráttarrör fyrir rafstrengi
  • Steypa kantbita með pollum, uppsetningu á stigum og fríholtum.
  • Fylla í skarð milli gamla stálþils og grjótgarðs noraustan við stálþilið.
  • Taka upp núverandi grjótvörn og endurraða grjótvörn utan á nýja fyllinguna.

Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. nóvember 2019.

Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerðinni, Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 27. maí 2019.

Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 12. júní 2019 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.