Fréttir
  • 20220321_Hreggnasaskipulag

Deiliskipulag Hreggnasasvæðis og svæðis við Hólsá

Skipulagssvæðið skiptist í svæði (A) íbúðasvæði við Hreggnasa og afmarkast af Þjóðólfsvegi og Höfðastíg í norðri, Völusteinsstræti og grunnskólalóð í austri og Heilsustíg í vestri samtals um 9 hektarar að stærð og svæði (B) frístundabyggð afmarkast af Hólsá til norður og Kirkjuvegi til suður og er 1,5 hektarar að stærð. Deilskipulagið verður unnið í samræmi við Aðalskipulag Bolungarvíkur 2020-2032 sem nú er á lokastigi.

Í samræmi við 40. grein skipulagslaga nr. 123/2010 hefur verið tekin saman lýsing á deiliskipulagsverkefninu sem samþykkt hefur verið í bæjarstjórn Bolungarvíkur.

Skipulagslýsingu ásamt uppdráttum er hægt að nálgast á heimasíðu Bolungarvíkurkaupstaðar www.bolungarvik.is.  

Frestur til að senda inn athugasemdir eða koma með ábendingar er varða skipulagslýsinguna er til 19. apríl n.k., þær má senda í tölvupósti á netfangið finnbogi@bolungarvik.is eða skriflega á bæjarskrifstofuna í Bolungarvík, Aðalstræti 12, 415 Bolungarvík.