Fréttir
  • Rollur

Fjallskilaseðill 2019

Seinni leitir eru samkvæmt ákvörðun bænda. Eigi síðar en tveimur vikum eftir fyrri leitir.

Fjáreigendur hafi samband við sinn leitarstjóra eigi síðar en á fimmtudagskvöld fyrir leitardag og þeir ræði síðan við sína smala varðandi smalatíma og staðsetningar. Leitarstjóri skal leitast við að tryggja að allir smalar viti hvers er af þeim ætlast þannig að smalamennskan gangi sem greiðlegast fyrir sig.

Slökkt skal vera á öllum rafmagnsgirðingum á leitardag. Umráðamenn túna og girðinga sjái til þess að þau séu smöluð að morgni smaladags.

Réttað er í Minni-Hlíð, réttarstjóri Sigurgeir Jóhannsson og í lögrétt á Sandi í Syðridal, réttarstjóri þar er Jóhann Hannibalsson.

Fjáreigendur athugið, að sleppa ekki fé aftur á fjall fyrr en eftir 30.september.

Ætlast er til að þá séu útlönd að fullu smöluð.

Útréttir annast Jóhann Hannibalsson.

Smalafjölda er útdeilt samkvæmt búfjártölum Matvælastofnunar (MAST) 2019 og skulu fjáreigendur og lögbýli leggja til smala samkvæmt eftirfarandi:

Syðridalur, Hólsland og Ósland. Smalar alls 22 menn.

Leitarstjóri: Jóhann Hannibalsson

 Fjáreigendur/lögbýliFjöldi smala 
 Guðmundur Ragnarsson 1
 Hóll 1
 Jón Guðni Guðmundsson 2
 Jóhann Hannibalsson 3
 Jón Ingi Högnason 2
 Margrét Ólafsdóttir 7
 Miðdalur 1
 Sigmundur Þorkelsson 2
 Sunna Reyr Sigurjóndóttir 3
 Samtals fjöldi: 22

Skálavík, Hlíðardalur og Tungudalur. Smalar alls 29 menn Stigahlíð. Smalar alls 8 menn.

Leitarstjóri: Sigurgeir Jóhannsson

 Fjáreigendur/lögbýli Fjöldi smala
 Albert Guðmundsson 3
 Breiðaból 1
 Elvar Stefánsson 2
 Finnbogi Bernódusson 2
 Guðrún Steingrímsdóttir 5
 Hálfdán Sveinbjörnsson 1
 Minni-Bakki
 Sigurgeir Jóhannsson12 
 Sigurjón Sveinsson 3
 Svala Björk Einarsdóttir 5
 Sigurður Hálfdánsson 1
 Samtals fjöldi: 37