Fréttir
  • Gnahlevo

Fjallskilaseðill 2023

Aðalleitardagar verða tveir.

Laugardaginn 9. september verður smalað í Syðridal og Hólsdal. Réttað verður í lögrétt á Sandi í Syðridal. Réttarstjóri er Arnþór Jónsson.

Laugardaginn 16. september verður smalað í Skálavík, Hlíðardal, Tungudal og Óslandi.
Réttað verður í Minni-Hlíð og á Neðri-Ósi. Réttarstjóri er Sigurgeir Jóhannsson og Högni Jónsson.

Stigahlíð, Keflavík og Öskubakur verða smöluð eftir samkomulagi bænda.

Fjáreigendur hafi samband við sinn leitarstjóra eigi síðar en á fimmtudagskvöld fyrir leitardag og þeir ræði síðan við sína smala varðandi smalatíma og staðsetningar. Leitarstjóri skal leitast við að tryggja að allir smalar viti hvers er af þeim ætlast þannig að smalamennskan gangi sem greiðlegast fyrir sig.

Slökkt skal vera á öllum rafmagnsgirðingum á leitardag. Umráðamenn túna og girðinga sjái til þess að þau séu smöluð að morgni smaladags.

Fjáreigendur athugið, að sleppa ekki fé aftur á fjall fyrr en eftir 30.september 2023.

Ætlast er til að þá séu útlönd að fullu smöluð.

Útréttir annast Arnþór Jónsson.

Fjáreigendur og lögbýli leggi til smala samkvæmt eftirfarandi ásamt því að mælst er til þess að fjáreigendur leggi til smala á þeim svæðum sem þeir eiga/hafa átt ær. 

Syðridalur, Hólsland og Ósland, leitarstjóri er Arnþór Jónsson og leitardagur 9. september 2023

 Fjáreigendur/lögbýli                   Fjöldi smala
 
Guðmundur Bjarni Jónsson 2
Guðmundur Ragnarsson 1
Hanhóll 1
Jón Guðni Guðmundsson 2
Jóhannes Már Jónsson 2
Margrét Ólafsdóttir 9
Miðdalur 1
Sigmundur Þorkelsson 3
Sunna Reyr Sigurjónsdóttir 3
Þórir Bjartmar Harðarson 1
25

Skálavík, Hlíðardalur og Tungudalur, leitarstjóri er Sigurgeir Jóhannsson og leitardagur 16. september 2023

 Fjáreigendur/lögbýli                  Fjöldi smala
 
Albert Guðmundsson 2
Elvar Stefánsson 2
Finnbogi Bernódusson 2
Kristján Jónsson 1
Sigurgeir Jóhannsson 10
Sigurjón Sveinsson 3
Svala Björk Einarsdóttir 5
Þórir Bjartmar Harðarsson 3
28

Stigahlíð, leitarstjóri er Sigurgeir Jóhannsson og verða smöluð eftir samkomulagi bænda

Fjáreigendur/lögbýli                  Fjöldi smala 
 
Hálfdán Sveinbjörnsson      1
Sigurgeir Jóhannsson 4
Svala Björk Einarsdóttir 2
Sigurður Hálfdánsson 1
8

Öskubakur/Keflavík, leitarstjóri er Sigurgeir Jóhannsson og verða smöluð eftir samkomulagi bænda