Fjallskilaseðill 2025
Aðalleitardagur verður laugardaginn 20. September.
Smalað verður í Syðridal og Óslandi.
Réttað verður í lögrétt á Sandi í Syðridal og Ósi.
Réttarstjóri er Arnþór Jónsson.
Smalað verður í Skálavík, Hlíðardal, Tungudal og Hólslandi.
Réttað verður í Minni-Hlíð.
Réttarstjóri er Sigurgeir Jóhannsson.
Stigahlíð, Keflavík og Öskubakur verða smöluð eftir samkomulagi bænda.
Fjáreigendur hafi samband við sinn leitarstjóra eigi síðar en á fimmtudagskvöld fyrir leitardag og þeir ræði síðan við sína smala varðandi smalatíma og staðsetningar. Leitarstjóri skal leitast við að tryggja að allir smalar viti hvers er af þeim ætlast þannig að smalamennskan gangi sem greiðlegast fyrir sig.
Slökkt skal vera á öllum rafmagnsgirðingum á leitardag. Umráðamenn túna og girðinga sjái til þess að þau séu smöluð að morgni smaladags.
Fjáreigendur athugið, að sleppa ekki fé aftur á fjall fyrr en eftir 4. október 2023.
Ætlast er til að þá séu útlönd að fullu smöluð.
Fjáreigendur sjá sjálfur um útréttir á sínu fé.
Fjáreigendur og lögbýli leggi til smala samkvæmt eftirfarandi ásamt því að mælst er til þess að fjáreigendur leggi til smala á þeim svæðum sem þeir eiga/hafa átt ær á:
Syðridalur og Ósland, leitarstjóri er Arnþór Jónsson og leitardagur er laugardagur 20. september 2025
Fjáreigendur/lögbýli Fjöldi smala | ||||||||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
|
Skálavík, Hlíðardalur, Tungudalur og Ósland, leitarstjóri er Sigurgeir Jóhannsson og leitardagur er laugardagur 20. september 2025
Fjáreigendur/lögbýli Fjöldi smala | ||||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
|
Stigahlíð, leitarstjóri er Sigurgeir Jóhannsson og leitardagur verður eftir samkomulagi bænda
Fjáreigendur/lögbýli Fjöldi smala | ||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
|