Fréttir
  • Rollur

Fjallskilaseðill 2020

COVID_19_Gongur_og_rettir

Umhverfismálaráð Bolungarvíkur samþykkti á fundi sínum 13. ágúst sl. eftirfarandi varðandi fjallskil:

  • Fyrri leitir verða 12. september 2020.
  • Seinni leitir verða samkvæmt ákvörðun bænda, en eigi síðar en tveimur vikum eftir fyrri leitir, þ.e. 26. september 2020.
  • Til greina kemur að leitir á Stigahlíð verði á öðrum tíma.
  • Réttað er í Minni-Hlíð, réttarstjóri er Sigurgeir Jóhannsson og í lögrétt á Sandi í Syðridal, réttarstjóri þar er Jóhann Hannibalsson.

Fjáreigendur hafi samband við sinn leitarstjóra eigi síðar en á fimmtudagskvöld fyrir leitardag og þeir ræði síðan við sína smala varðandi smalatíma og staðsetningar. Leitarstjóri skal leitast við að tryggja að allir smalar viti hvers er af þeim ætlast þannig að smalamennskan gangi sem greiðlegast fyrir sig.

Slökkt skal vera á öllum rafmagnsgirðingum á leitardag. Umráðamenn túna og girðinga sjái til þess að þau séu smöluð að morgni smaladags.

Fjáreigendur athugið! að sleppa ekki fé aftur á fjall fyrr en eftir 28. september 2020. Ætlast er til að þá séu útlönd að fullu smöluð.

Útréttir annast Jóhann Hannibalsson.

Smalafjölda er útdeilt samkvæmt búfjártölum frá atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu og skulu fjáreigendur og lögbýli leggja til smala samkvæmt eftirfarandi:

Syðridalur, Hólsland og Ósland, smalar alls 23 menn, leitarstjóri er Jóhann Hannibalsson.

Fjáreigendur/lögbýli  Fjöldi smala 
 Guðmundur Ragnarsson  1
 Jón Guðni Guðmundsson  2
 Jóhann Hannibalsson  0
 Jón Ingi Högnason  2
 Margrét Ólafsdóttir  8
 Sunna Reyr Sigurjóndóttir  3
 Þórir B. Harðarson  3
 Samtals fjöldi  19

 

Skálavík, Hlíðardalur og Tungudalur, smalar alls 28 menn, Stigahlíð, smalar alls 9 menn, leitarstjóri er Sigurgeir Jóhannsson

Fjáreigendur/lögbýli  Fjöldi smala Skálavík, Hlíðardal og Tungudal Fjöldi smala Stigahlíð
 Albert Guðmundsson  2  0
 Elvar Stefánsson  2  0
Finnbogi Bernódusson  2  1
Guðrún Steingrímsdóttir 3 1
Hálfdán Sveinbjörnsson 1 1
 Kristján Jónsson  1  0
Sigurgeir Jóhannsson 8 4
Sigurjón Sveinsson 3 0
Svala Björk Einarsdóttir 5 1
Sigurður Hálfdánsson 1 1
Samtals fjöldi
28 9