Frístundakort fyrir 2018
Frístundakort getur nýst öllum börnum og unglingum sem eiga lögheimili í Bolungarvík.
Styrkur er greiddur út vegna útgjalda sem myndast á yfirstandandi almanaksári og þurfa beiðnir um endurgreiðslu að berast á almanaksárinu.
Fjárhæð styrks er að hámarki 20.000 kr. fyrir hvern einstakling á almanaksárinu. Eftir áramótin hækkar stykurinn fyrir árið 2019 í 40.000 kr.
Skila þarf kvittunum á bæjarskrifstofu fyrir greiðslu á þátttökugjöldum vegna þátttöku- eða námskeiðsgjalda í íþróttum eða listum til að fá styrk greiddan.
Umsækjendur kynni sér reglur um frístundakort og noti umsóknarform.