Frístundaleiðbeinanda vantar
Óskað er eftir hugmyndaríkum einstaklingi sem hefur áhuga á að starfa með unglingum.
Reynsla af félagsstarfi og/eða starfi með unglingum er æskileg. Nánari upplýsingar gefur Helgi Hjálmtýsson, markaðs- og kynningarfulltrúi, á bæjarskrifstofu Bolungarvíkurkaupstaðar og í síma 450-7007.
Umsóknum skal skila í síðasta lagi 29. ágúst á bæjarskrifstofu Bolungarvíkur, merkt „Frístundaleiðbeinandi“ eða á netfangið helgi@bolungarvik.is.