Fréttir
  • Topaz

Frístundaleiðbeinandi óskast

Félagsmiðstöðin Tópaz

Óskað er eftir hugmyndaríkum einstaklingi sem hefur áhuga á að starfa með unglingum. Reynsla af félagsstarfi og/eða starfi með unglingum er æskileg.

Félagsmiðstöðin Tópaz er opin þrjú kvöld í viku frá kl. 20-22 en auk þess er tilfallandi viðvera vegna viðburða í starfssemi félagsmiðstöðvarinnar.

Umsóknarfrestur er til og með 31. ágúst 2023.

Umsóknum skal skila á bæjarskrifstofu Bolungarvíkur, merkt „Frístundaleiðbeinandi“ eða á netfangið katrin@bolungarvik.is.

Umsækjandi þarf að leggja fram sakavottorð sem hann aflar sjálfur áður en skrifað er undir ráðningarsamning. Hægt er að sækja sakavottorð á island.is.

Nánari upplýsingar gefur Katrín Pálsdóttir, fjármálastjóri, á netfangi katrin@bolungarvik.is.