Fréttir
  • G-vítamín

Frítt í sund

Miðvikudaginn 17. febrúar bjóða sveitarfélög úti um allt land frítt í sund sem aukaskammt af G-vítamíni dagsins sem er „hreyfðu þig daglega“. Að fara í sund, taka 100 metrana eða bara láta þreytuna líða úr sér í pottinum er G-vítamín í sinni tærustu mynd!

Við þurfum öll að rækta og vernda geðheilsu okkar. Rétt eins og með líkamlega heilsu, þar sem öllum er ráðlagt að taka vítamín daglega, gerir margt smátt eitt stórt í geðrækt.

Markmiðið með G-vítamín er að styrkja geðheilsu landsmanna en um leið að fyrirbyggja bresti og verja okkur í mótbyr.