Fréttir
  • Landsaaetlun

Fundur félags- og vinnumarkaðsráðherra um innleiðingu landsáætlunar

21. júní – Ísafjörður kl. 12 (Edinborgarhúsið)

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, býður til samráðsfunda um landið vegna landsáætlunarinnar. Málefni fatlaðs fólks koma okkur öllum við og fólk er hvatt til að mæta og taka þátt. Hér gefst einstakt tækifæri til að hafa bein áhrif á þróun þjónustu við fatlað fólks á Íslandi.

Ef þörf er á táknmálstúlkun, rittúlkun eða annarri sérstakri aðstoð er mikilvægt að það komi fram við skráningu.

Dagskrá:

Á fundunum er fjallað um helstu áherslur í þjónustu við fatlað fólk í nútíð og framtíð og hvernig staðið verður að innleiðingu þeirra. Samráðsfundirnir hafa þann tilgang að tryggja milliliðalaust samtal um það sem fólki er efst í huga þegar málefni fatlaðs fólks ber á góma.

Fundirnir fara þannig fram að ráðherra flytur opnunarávarp og kynnt eru nokkur þeirra verkefna sem tilheyra landsáætluninni. Fulltrúar heildarsamtaka fatlaðs fólks fjalla um sínar áherslur og framtíðarsýn og starf notendaráða er kynnt. Að lokum býður ráðherra til samtals við viðstadda um það sem þeim er efst í huga.

Verið öll hjartanlega velkomin á opinn fund á Ísafirði mánudaginn 21. júní kl. 12:00 um málefni fatlaðs fólks.