Fréttir
  • Leikskólinn Bolungarvík - götuhlið

Fyrsta skrefið í stækkun leikskólans

Jón Páll Hreinsson og Einar ÓlafssonÞað er Arkiteó sem hannar og teiknar breytingar á núverandi húsnæði leikskólans Glaðheima við Hlíðarstræti í Bolungarvík ásamt 290 m2 nýbyggingu. 

Einar Ólafsson, arkitekt, sér um fullnaðarhönnun byggingarnnar ásamt því að vera samræmingarhönnuður og hönnunarstjóri verksins.

Þegar framkvæmdum lýkur er gert ráð fyrir að hinn nýji leikskóli geti tekið 70 börn í vistun og mun leikskóladeildinni í Lambhaga verða lokað á sama tíma.

Jón Páll Hreinsson, bæjarstjóri, sagði við þetta tækifæri:

Nýr leikskóli við Glaðheima verður bylting í leikskólamálum í Bolungarvík og mun bæta aðbúnað fyrir börnin og starfsfólkið. Fyrir er í Bolungarvík afar gott starf innan leikskólans og með þessari framkvæmd skapast tækifæri til að sækja fram í þjónustu við barnafólk. 

Aðaluppdráttum á að skila í ágúst 2017 og fullkláruðum gögnum í nóvember 2017. 

Arkiteó var stofnað árið 2004 til að koma á fót hönnunarhverfri teiknistofu. Arkiteó hefur unnið til margra verðlauna á sínu sviði og leitast við að færa alþjóðlegar hugmyndir og sjónarmið í hönnun til Íslands með samvinnu við fagmenn og listamenn um allan heim. Á sama tíma hefur stofan ávallt sótt innblástur í íslenskan menningararf.