Guðbjörg Stefanía forseti bæjarstjórnar
Margrét Jómundsdóttir var kosin fyrsti varaforseti og Guðrún Stella Gissurardóttir annar varaforseti.
Bæjarstjórn Bolungarvíkur skipa:
- (D) Guðbjörg Stefanía Hafþórsdóttir, forseti
- (D) Margrét Jómundsdóttir, 1. varaforseti
- (M) Guðrún Stella Gissurardóttir, 2. varaforseti
- (D) Baldur Smári Einarsson
- (D) Helga Svandís Helgadóttir
- (M) Halldóra D. Sveinbjörnsdóttir
- (M) Guðlaug Rós Hólmsteinsdóttir
Jafnframt var kosið í bæjarráð og var Baldur Smári Einarsson kosinn formaður bæjarráðs, Margrét Jómundsdóttir varaformaður og Guðrún Stella Gissurardóttir fulltrúi.