Fréttir
  • Triobike

Hjólað óháð aldri – söfnun

Útivist og holl hreyfing eldri borgara er megin hugsunin á bakvið söfnun sem fer nú af stað í desember og kallast „Hjólað óháð aldri“.

Síðan ég sá fyrst verkefnið „Hjólað óháð aldri“ hefur það verið í huga mér að hrinda af stað söfnun til kaupa farþegahjól til að færa hjúkrunarheimilinu Bergi og íbúum Árborgar. Nú hef ég tekið höndum saman við Heilsubæinn Bolungarvík og viljum við biðla til ykkar um að leggja verkefninu lið.

Álíka hjól var keypt var fyrir Hjúkrunarheimilið Eyri á Ísafirði árið 2016 og hefur það gefið góða raun. 

Hjólið er af gerðinni TRIO BIKE og er rafdrifið að hluta svo auðvelt verður að hjóla um allan bæ. Kostnaður við kaupin á hjólinu með öllum aukabúnaði er um ein milljón króna. 

„Hjólað óháð aldri“ hefur reynst vel víða um land og hefur verkefnið rofið einangrun íbúa hjúkrunarheimila og gefið þeim aukna möguleika á útiveru.

Okkar draumur er að geta vígt hjólið á sjómannadaginn 2018.

Markmiðið er að virkja vini, ættinga og brottflutta til að skrá sig sem sjálfboðaliða í hjólaferðir. Ég vona bara að sem flestir geti tekið þátt í þessu verkefni með okkur, það geta allir komið og hjólað.

Reikningsupplýsingar Heilsubæjarins Bolungarvíkur eru eftirfarandi:
Kennitala 520109-1610
Reikningsnúmer 0174-26-000802

Bestu kveðjur,
Guðrún D. Guðmundsdóttir
og stjórn Heilsubæjarins Bolungarvíkur