Hóf til heiðurs íþróttamanneskju ársins í Bolungarvík
Í tilefni af útnefningu á íþróttamanneskju Bolungarvíkur fyrir árið 2024 og veitingu viðurkenninga verður haldið hóf í sal Ráðhússins fimmtudaginn 16. janúar nk. kl.17:00.
Tilnefningar til Íþróttamanneskju ársins 2024 eru eftirfarandi:
Golfklúbbur Bolungarvíkur tilnefnir Flosa Valgeir Jakobsson
Sunddeild UMFB tilnefnir Ingibjörgu Önnu Skúladóttur
Knattspyrnudeild Harðar tilnefnir Gabríel Heiðberg Kristjánsson
Hestmannafélagið Gnýr tilnefnir Rögnvald Ingólfsson
Tilnefnd til efnilegustu íþróttamanneskju ársins eru:
Jóhanna Wiktoria Harðardóttir - Körfuknattleiksdeild Vestra
Sigurður Hólmsteinn Olgeirsson - GBO
Fræðslumála- og æskulýðsráð Bolungarvíkur býður öll velkomin.