Fréttir
  • Olgeir Hávarðarson og Stefanía Birgisdóttir

Hundrað ára verslun í Bolungarvík

Á þessum hundrað árum hefur eitt hlutafélag og þrír kaupmenn staðið fyrir verslunarrekstri í húsinu.

  • Hinar sameinuðu íslensku verslanir hf. 1920-1926
  • Bjarni Eiríksson 1927-1958
  • Benedikt Bjarnason 1958-1996
  • Stefanía Birgisdóttir 1996-

Hinar sameinuðu íslensku verslanir samanstóðu af Gránufélaginu, Tulinius og Á. Ásgeirsons og ráku verslanir á Austurlandi, Norðurlandi og við Ísafjarðardjúp. Næst á eftir Sambandinu var þetta hlutafélag stærsta verslunarfyrirtæki á Íslandi en varð gjaldþrota árið 1926. 

Hinar sameinuðu íslensku verslanir reistu húsið við Hafnargötu 81 árið 1919. Karlmenn í Bolungarvík voru flestir á síld þegar byrjað var á húsinu um haustið og það voru því konur og ungt fólk sem grófu fyrir grunni hússins en timburverk þess kom tilsniðið frá Danmörku í ágúst 1919.

Bjarnabúð - teikningBjarni Eiríksson var fenginn frá Ásgeirsverslun á Ísafirði til að reka verslun félagsins í Bolungarvík og tók síðan upp verslunarrekstur þar eftir gjaldþrot þess en verslun hans nefndist Verzlun Bjarna Eiríkssonar og heitir það enn í dag. Benedikt Bjarnason tók við rekstrinum af föður sínum og rak verslunina þar til Stefanía Birgisdóttir tók við af Benedikt.

Í Bjarnabúð var alltaf afgreitt yfir borðið en árið 1963 var búðinni breytt í kjörbúð og var hún fyrst slíkra verslana utan Reykjavíkur.

Í Bjarnabúð má finna allt milli himins og jarðar m.a. vefnaðavöru, bækur, gjafavöru, ungbarnafatnað, föt á fullorðna og búðin er einnig matvöruverslun.

Bolungarvíkurkaupstaður óskar Stefaníu Birgisdóttur og manni hennar Olgeiri Hávarðarsyni til hamingju með þennan merka áfanga í verslunarsögu Bolungarvíkur og Bolvíkingum öllum til hamingju með afmælið!