Fréttir

Í góðum félagsskap — Kynning á félagsstarfi

Ísafjarðarbær og Bolungarvíkurkaupstaður í samstarfi við Vestfjarðastofu standa fyrir kynningardegi á félagsstarfi á norðanverðum Vestfjörðum. Viðburðurinn sem hefur fengið heitið Í góðum félagsskap fer fram laugardaginn 21. september í Edinborgarhúsinu, frá kl. 14:00-16:00.

Þeir sem vilja kynna félagsstarf fá úthlutað plássi þar sem þeir geta sett upp sinn eigin kynningarbás. Á básnum fer fram fræðsla um viðkomandi starfsemi og gefst þar færi á að hvetja fólk til þátttöku í starfinu. Hægt er að skrá sig til leiks hér og verður lokað fyrir skráningar föstudaginn 13. september.

Sérstök áhersla er lögð á að kynna nýjum íbúum í sveitarfélögum á norðanverðum Vestfjörðum allt það skemmtilega félagsstarf sem fram fer á svæðinu, en allir íbúar nýir sem gamlir eru velkomnir að finna sér eitthvað spennandi að fást við.