Fréttir

Íbúafundur - Endurskoðun skólastefnu Bolungarvíkur

 

Þriðjudagur 7. október 2025
Kl. 17:00
Grunnskólinn í Bolungarvík

Hafin er vinna við endurskoðun skólastefnu Bolungarvíkur frá 2020. Verkefnið er fólgið í því að greina núverandi stöðu á gildandi skólastefnu og móta framtíðarsýn með skýrum viðmiðum um gæði menntastarfs.

Rík áhersla er lögð á samráð við stjórnendur, starfsfólk, nemendur, foreldra og aðra íbúa sveitarfélagsins við endurskoðun skólastefnunnar.

Opið ferli og samtal við samfélagið er mikilvægt svo vel takist til við mótun stefnu og innleiðingu enda er slíkt grundvöllur þess að sem mest sátt ríki um stefnuna. Nú býður stýrihópurinn öllum sem áhuga hafa að mæta á íbúafund um endurskoðun stefnunnar þar sem íbúum gefst kostur á að leggja sitt af mörkum.

Dagskrá fundarins

  • Kynning á endurskoðun og fyrirlestur - Gerð og mikilvægi menntastefnu sveitarfélaga - Kristrún frá Ásgarði skólaráðgjöf

  • Hópavinna - styrkleikar, veikleikar, ógnanir, tækifæri ofl.

  • Samantekt, spurningar og næstu skref.

  • Fundi lokið fyrir 19.00

 

Með von um góða þátttöku!
Fræðslumálaráð Bolungarvíkur

 

 


Fréttir

    Enginn Skjalaflokkur er tengdur.

Fréttir

    Enginn Skjalaflokkur er tengdur.