Innheimtufulltrúi
Innheimtustofnun sveitarfélaga leitar að innheimtufulltrúa á starfsstöð sinni á Ísafirði
Starfið felst meðal annars í fjölbreyttum verkefnum sem snúa að innheimtu á meðlögum auk annarra tilfallandi verkefna á starfsstöðinni. Í boði er áhugavert og fjölbreytt starf sem er í þróun. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
· Almenn upplýsingagjöf og ráðgjöf til meðlagsgreiðenda og fyrirtækja.
· Framkvæmd ýmiskonar aðgerða vegna löginnheimtu.
· Útsending staðlaðra bréfa.
· Önnur tilfallandi störf.
Menntunar- og hæfniskröfur
· Framúrskarandi þjónustulund og rík samskiptafærni
· Sjálfstæð og öguð vinnubrögð.
· Jákvæðni og vilji til þess að takast á við fjölbreytt verkefni.
· Góð tölvukunnátta.
· Góð kunnátta í íslensku og ensku.
· Menntun sem nýtist í starfi.
· Þekking á löginnheimtu er kostur.
Einstaklingar óháð kyni eru hvattir til að sækja um, öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur til 16. nóvember.
Sótt er um starfið hér: https://alfred.is/starf/innheimtufulltrui-a-isafirdi-1