Fréttir
  • Ráðhús Bolungarvíkur

Jón Páll næsti bæjarstjóri

Jón Páll HreinssonJón Páll er með M.Sc. í alþjóðaviðskiptum frá Norwegian School of Management – BI og B.Sc. í markaðsfræðum frá Tækniskóla Íslands. 

Hann hefur fjölþætta reynslu úr atvinnulífinu sem markaðsstjóri hjá framleiðslufyrirtæki og forstöðumaður hjá flutningafyrirtæki auk þess að starfa sem umboðsmaður skemmtiferðaskipa.  

Hann hefur tengst sveitarstjórnarmálum m.a. í gegnum starf sitt undanfarin ár sem ráðgjafi hjá Atvinnuþróunarfélagi Vestfjarða og sem framkvæmdastjóri Markaðsstofu Vestfjarða. Þar hefur hann veitt ýmiskonar ráðgjöf til fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga, aðallega á sviði rekstrar- og markaðsmála auk áætlunargerðar og stefnumótunarverkefna.  

Jón Páll hefur einnig komið að fjölmörgum nýsköpunarverkefnum í störfum sínum auk þess að vera virkur í félagsmálum. 

Jón Páll er í sambúð með Þuríði Katrínu Vilmundardóttur, skurðhjúkrunarfræðingi og eiga þau fjögur börn og mun fjölskyldan flytja til Bolungarvíkur.