Fréttir
  • Skjaldarmerki Bolungarvíkur

Kjörfundur

Kjörfundur hefst kl. 10:00 árdegis og stendur til kl. 22:00 síðdegis. 

Kjósendur geta kosið utan kjörfundar hjá fulltrúum Sýslumanns Vestfjarða í Ráðhúsi Bolungarvíkur á opnunartíma þjónustumiðstöðvar á virkum dögum frá kl. 10:00 til kl. 15:00.

Á vefnum www.kosning.is eru myndbönd sem leiðbeina um framkvæmd atkvæðagreiðslu utan kjörfundar. 

Kjósendur geta kannað hvar þeir eru á kjörskrá á vefnum www.island.is og kjörskrá liggur einnig frammi á bæjarskrifstofu Bolungarvíkurkaupstaðar að Aðalstræti 10-12 á afgreiðslutíma þjónustumiðstöðvar frá kl. 10:00 til kl. 15:00. 

Kjörstjórn vekur athygli kjósenda á 79. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24 frá 16. maí 2000, en þar segir: 

„Kjósandi skal gera kjörstjórn grein fyrir sér, svo sem með því að segja til sín og framvísa kennivottorði eða nafnskírteini, eða á annan fullnægjandi hátt að mati kjörstjórnar. Ef hann þannig á rétt á að greiða atkvæði samkvæmt kjörskránni afhendir kjörstjórn honum einn kjörseðil.“

Kjörstjórn Bolungarvíkur