Kveðja til Grindvíkinga
Bæjarstjórn Bolungarvíkur sendi Grindvíkingum eftirfarandi kveðju:
„Bolungarvíkurkaupstaður
sendir fyrir hönd íbúa hlýjar kveðjur og samhug til Grindvíkinga sem hafa þurft
að rýma hús sín vegna náttúruhamfara. Hugur sveitarfélagsins eins og allra
landsmanna er hjá ykkur og það er einlæg von okkar að þessar náttúruhamfarir
fái sem farsælastan endi og að íbúar Grindavíkur geti snúið aftur til síns
heima hratt og örugglega. Þeir íbúar Grindavíkur sem leita skjóls í
Bolungarvíkurkaupstað á meðan þetta hamfaraástand varir munu hafa sama aðgang
að þjónustu og þau sem hafa lögheimili í Bolungarvíkurkaupstað. Íbúar í
Bolungarvíkurkaupstað sem geta boðið upp á húsnæði á meðan á rýmingu stendur er
bent á að skrá sig á lista rauða krossins yfir boð um húsnæði til
Grindvíkinga.“
Ef einhverjar spurningar vakna eða ef Bolungarvíkurkaupstaður getur orðið að liði þá má senda okkur tölvupóst á bolungarvik@bolungarvik.is.