Fréttir
  • Grunnskóli Bolungarvíkur

Lausar stöður við Grunnskóla Bolungarvíkur

  • 100% stöður á mið- og unglingastigi. Helstu hlutverk/kennslugreinar er umsjón, stærðfræði, íslenska, samfélagsfræði og enska
  • 50% staða í kennslu hönnunar og smíði

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu
  • Metnaður til að vinna eftir fjölbreyttum og árangursríkum kennsluaðferðum
  • Áhugi á starfi með börnum og unglingum
  • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, sjálfstæði og sveigjanleiki í vinnubrögðum
  • Góð færni í íslensku máli jafnt í ræðu og riti
  • Reglusemi og samviskusemi

Laun og launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við KÍ.

Umsóknum skilað til skólastjóra á netfangið halldoras@bolungarvik.is með upplýsingum um menntun, réttindi og starfsreynslu, ásamt ábendingum um meðmælendur. Móttaka umsókna verður staðfest.

Nánari upplýsingar veitir Halldóra Dagný Sveinbjörnsdóttir skólastjóri í síma 4567249, netfang: halldoras@bolungarvik.is

Umsóknarfrestur er til og með 16. maí 2022.

Í Grunnskóla Bolungarvíkur eru um 130 nemendur og 30 starfsmenn. Starfshættir grunnskólans eru í sífelldri þróun. Skólinn byggir starfsemi sína á faglegu og framsæknu skólastarfi sem tekur ávallt mið af þroska og hæfni nemenda. Í skólanum er fjölmenningarlegt samfélag nemenda, starfsfólks og foreldra.