Leikskólakennara vantar
Menntunar- og hæfnikröfur:
- Leyfisbréf til kennslu skilyrði
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
- Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Áhugi á fræðslu barna og velferð þeirra
- Stundvísi
- Hreint sakavottorð
- Góð íslenskukunnátta
Umsækjandi þarf að geta hafið störf í ágúst. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum KÍ. Starfið hentar jafnt körlum sem konum.
Umsóknum ásamt ferilskrá skal skilað í tölvupósti gladh@bolungarvik.is.
Umsóknarfrestur er til 8. júlí 2022.
Allar frekari upplýsingar veita Ragnheiður eða Guðbjörg í síma 456-7264 eða á netfangið gladh@bolungarvik.is.
Glaðheimar
er þriggja deilda leikskóli með um 50 nemendur. Í leikskólanum er unnið
með heilsueflingu og lífsleikni í leikskóla sem byggist á dygðakennslu.
Mikil áhersla er lögð á útiveru, hreyfingu og hollustu.
Heimasíða leikskólans er gladheimar.leikskolinn.is.